top of page

Markþjálfunardagurinn 2023 - Velsæld og árangur!

Markþjálfunardagurinn verður haldinn þann 2. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni ,,Velsæld og árangur á framsýnum vinnustað”. Þar munum við að venju leiða saman alþjóðlegt fagfólk sem deilir reynslu sinni af því hvernig þörf á nýrri nálgun í átt að árangri fyrirtækja byggir á þeirri trú að blómstrandi fólk og teymi séu forsenda þess árangurs.



Aðalfyrirlesarar Markþjálfunardagsins eru frumkvöðullinn og manneskja ársins Haraldur Þorleifsson, Tonya Echols margverðlaunaður alþjóðlegur PCC markþjálfi, og Kaveh Mir, stjórnendamarkþjálfi MCC sem situr í stjórn ICF International ásamt Tonya.


Harald þekkir hvert mannsbarn hér á landi fyrir m.a. Römpum upp Ísland verkefnið, auk þess sem hann var kosinn manneskja ársins. Hann hefur náð ótrúlegum árangri í sínum verkefnum hvort sem það eru hans persónulegu verkefni eða fyrirtækið Ueno sem hann byggði upp og seldi til Twitter. Hans erindi nefnist Function + Feelings. Tonya var valin stjórnendamarkþjálfi ársins af CEO Today Magazine, hún situr í ráðgjafateymi Forbes, hefur skrifað fjölda greina í Forbes og er í markþjálfateymi TED Talks. Kaveh hefur komið að stjórnendaþjálfun, breytingastjórnun, teymis-uppbyggingu, leiðtogaþróun og vinnustaðamenningu hjá fjölda alþjóðlegra fyrirtækjarisa á borð við Warner Bros, Google, Amazon, Lego, Deloitte, HSBC, Mars, Salesforce og CNN og verður gjöfull á reynslu sína í erindi sínu.


Það er okkur sannur heiður að fá stórstjörnur frá ICF International til okkar á Markþjálfunardaginn í ár, fólk með áratuga reynslu á stóra sviði markþjálfunar. Þau ætla að opna upp á gátt reynslu sína og viðskiptamódel á vinnustofunum sem ætlaðar eru fyrir markþjálfa og erum við mjög spennt að læra af þeim.

Auk þeirra Haraldar, Tonyu og Kaveh munu stíga á stokk þrjú fyrirlesarateymi: Aldís Arna PCC markþjálfi og Jón Magnús Kristinsson læknir, markþjálfarnir Anna María Þorvaldsdóttir ACC og Inga Þórisdóttir og Kristrún Anna Konráðsdóttir ACC markþjálfi og Davíð Gunnarsson framkvæmdastjóri Dohop. Þá mun þróunarstjóri hjá ICF International Malcom Fiellies PCC markþjálfi og þjálfunarstjóri hjá ICF Global vera með erindi um stuðning við starfsfólk í gegnum skipulagsbreytingar.


Markþjálfunardagurinn er stærsti árlegi viðburður félagsins. Vinnustofurnar verða haldnar 1. febrúar en ráðstefnan 2. febrúar. Miðasala er hafin á Tix og hvetjum við alla félaga að njóta dagsins, uppskerunnar og tengslanetsins. Viðburðirnir gerast ekki stærri.


Við hlökkum til að sjá ykkur!

180 views

Related Posts

See All
bottom of page