Lella Erludóttir
ACC markþjálfi
Lella er ACC vottaður markþjálfi með ástríðu fyrir því að nýta aðferðir markþjálfunar til að hjálpa fólki og fyrirtækjum að ná vexti, jafnvægi og sátt. Hún leggur mikið upp úr djúpri hlustun, einlægni, jákvæðum samskiptum, innsæi og tengingu við fólk.
Lella hefur margra ára stjórnunarreynslu á sviði sölu- og markaðsmála og nýtur þess að styðja stjórnendur og fyrirtæki til árangurs.
Lella er með fjölbreyttan bakgrunn en hún er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun, MA í blaða- og fréttamennsku auk BA í sálfræði. Hennar helstu hugðarefni snúa að vinnustaðamenningu, eflingu starfsfólks, jákvæðum samskiptum og samþættingu teyma.
Lella býður upp á persónulega markþjálfun á eigin vegum og markþjálfun stjórnenda og starfsfólks á vinnustöðum.
- Persónulega markþjálfun
- Stjórnendaþjálfun
- Starfstengd markþjálfun
- Aðstoð við stefnumótun
- Teymismarkþjálfun
- Fyrirlestrar
- Námskeið