top of page

Hvernig tryggirðu að þú náir markmiðum þínum í lífi og starfi?

Flest höfum við líka upplifað það að ná ekki markmiðum okkar, við annað hvort hættum að vinna að þeim, gefumst upp eða hættum að trúa því að þau skipti okkur máli.



Allt of margir falla í þá gryfju að láta utanaðkomandi aðstæður stýra því hver árangurinn er. Þar vantar skuldbindingu og skýra sýn á okkar eigin framlag.

Flest höfum við á einhverjum tímapunkti sett okkur markmið um þann árangur sem við viljum ná..

Mín ráð til þín eru einföld en krefjast þess engu að síður að þú skoðir eftirfarandi:


Þekktu markmiðið þitt.

Hvað þýðir það nákvæmlega og hvenær ertu búinn að ná því? Skráðu hjá þér markmiðið. Hafðu það skýrt og mælanlegt. Markmið sem segir “ég ætla að fá stöðuhækkun á árinu” eða “ég ætla að lifa betra lífi” segir ekki nema hálfa söguna. Hvað þýðir betra líf fyrir þig? Þú verður að vita hvert þú vilt stefna.


Athugaðu hvað liggur að baki markmiðinu

Hvers vegna seturðu þér einmitt þetta markmið - er eitthvað annað sem er mikilvægara fyrir þig?


Hvað þarftu að gera nákvæmlega til að ná markmiðinu? Þegar þú ert viss um að þetta sé það sem þú vilt ná, ákveddu þá, hvenær þú ert búinn að ná markmiðinu, hafðu skýra sýn á það og mælanlegan árangur. Hérna skora ég á þig að leyfa þér að fara á flug. Sjáðu þig t.d. fyrir þér í draumastöðunni eftir 6 mánuði eða eitt ár. Hvar ertu? Hverju hefurðu áorkað? Hvernig fórstu að því?


Skráðu þetta hjá þér og þá ertu kominn með aðgerðarplan eða leiðarvísi að þeim árangri sem þig dreymir um. Markmið án aðgerðarplans er bara góð hugmynd.


Trúðu því að þú hafir alla þá hæfileika til að ná markmiði þínu Stígðu svo skrefið til baka til dagsins í dag og leyfðu þér að upplifa alla þá hæfileika sem þú býrð yfir til að ná þessari sýn. Trúðu því að þú hafir það sem til þarf til að gera breytingar. Ekki bíða eftir að breytingarnar eigi sér stað, taktu stjórnina. Skref fyrir skref í átt að markmiðinu er eina leiðin til að ná því. 


Fagnaðu hverju litli skrefi sem færir þig nær markmiðinu Þegar á móti blæs er gott að sjá sig fyrir sér í markmiðinu, þess vegna að hafa táknræna mynd í huganum, nú eða uppi á vegg. Þú hefur alla þá hæfileika og getu til að ná markmiði þínu. Ef þú efast, skoðaðu hvað það er sem fær þig til að efast.  Tilfinningin um árangur, sem leiddi til þess að markmiðið var sett í upphafi er oft besti hvatinn, rifjaðu hana upp á leiðinni og mundu að án skuldbindingar af þinni hálfu eru líkurnar á árangri litlar.


Fáðu markþjálfa til að aðstoða þig

Þar ertu kominn með bandamann sem hjálpar þér að koma auga á hindranirnar og yfirstíga þær auk þess sem hann heldur þér við efnið og hefur trú á þér alla leið.


„Ef þú veist ekki hvert þú stefnir, endarðu einhversstaðar annarsstaðar” (Yogi Berra)


42 views

Related Posts

See All
bottom of page