top of page

Markþjálfahjartað: ADHD, einhverfa og listin að mæta ólíkum markþegum

fim., 05. nóv.

|

Míró markþjálfun og ráðgjöf

Markþjálfahjartað í samstarfi við ICF býður þér til Hafnarfjarðar á áhugavert erindi með Sigrúnu Jónsdóttur, þroskaþjálfa og ADHD- og einhverfumarkþjálfa. Viðburðurinn er opinn öllu félagsfólki. Í boði eru 1 CCE eining og 1 RD eining fyrir viðburðinn.

Markþjálfahjartað: ADHD, einhverfa og listin að mæta ólíkum markþegum
Markþjálfahjartað: ADHD, einhverfa og listin að mæta ólíkum markþegum

Tímasetning

05. nóv. 2026, 17:00

Míró markþjálfun og ráðgjöf, Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41 220, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Um viðburð

Markþjálfahjartað í samstarfi við ICF býður þér til Hafnarfjarðar á áhugavert erindi með Sigrúnu Jónsdóttur, þroskaþjálfa og ADHD- og einhverfumarkþjálfa.


Sigrún hefur sérhæft sig í markþjálfun fólks með ADHD og einhverfu og vinnur út frá styrkleikamiðaðri nálgun þar sem sjálfsþekking, sjálfræði og einstaklingsbundnar þarfir eru í forgrunni.


Eru góðar markþjálfunarspurningar alltaf góðar fyrir alla?

Í erindinu fjallar Sigrún um taugafjölbreytileika, ADHD og einhverfu og hvernig skilningur á ólíkri taugagerð getur breytt því hvernig við hlustum, spyrjum og styðjum markþega.


Hún skoðar einnig áhrif og ávinning markþjálfunar, mikilvægi orðræðu og hvernig markþjálfar geta aðlagað nálgun sína að ólíkum þörfum.


Sigrún þekkir ADHD af eigin raun og segir á heimasíðu sinni, miro.is:


Deila

bottom of page