Tonya Echols
Tonya er hvalreki fyrir íslenskt atvinnulíf með áratuga reynslu af markþjálfun, stjórnun og leiðtogaþjálfun. Hún er margverðlaunaður...
mán., 12. des.
|Bragginn - Reykjavík
Nú skal koma saman og fagna afmæli fagfélags markþjálfa. Veislustjóri er Ragnhildur Vigfúsdóttir húmoristi, PCC markþjálfi og félagi. Fjölmennum til að njóta þessara tímamóta saman!
12. des. 2022, 17:00 – 19:00
Bragginn - Reykjavík, Nauthólsvegur, 102 Reykjavík, Iceland
Fagfélag markþjálfa sem þá hét Félag markþjálfa á Íslandi var stofnað 12. desember 2006 með það að markmiði að fræða, miðla og tengja. Það eru tengsl félagsmanna sem verða í öndvegi á þessum afmælisviðburði.
Frír aðgangur og opinn fyrir öll sem vilja fagna með. Mikilvægt að skrá þátttöku fyrir hvern og einn.