Greinin birtist fyrst í „Mín skoðun" á visi.is og er skrifuð af Rakel Baldursdóttur ACC markþjálfa í aðdraganda Markþjálfunardagsins 2023. Rakel situr í stjórn ICF Iceland sem hefur veg og vanda af ráðstefnunni.
Af hverju ætti það að skipta máli að huga að velsæld starfsmanna?
Rannsóknir segja okkur svo enginn vafi sé á að það að huga vel að starfsmönnum er lykilatriði að árangri. Leiðir til að auka velsæld eru margar og flestir stjórnendur vilja tryggja vellíðan starfsmanna sinna. Margir vinnustaðir hafa verið með starfsmannaviðtöl í áranna rás en því miður vill það stundum verða til þess að einungis sé verið að tikka í boxið sem partur að stefnu fyrirtækis og ekki er eftirfylgni með. Sem betur fer er það þó mun algengara að slík viðtöl eru unnin af mikilli fagmennsku og fagfólki með það í huga að styrkja mannauðinn á vinnustaðnum og huga betur að einstaklingnum.
Mikilvægi þess að tryggja og auka vellíðan starfsmanna ætti að vera í forgrunni allra fyrirtækja, þannig aukast líkur til muna að ná settum árangri og styðja við áframhaldandi þróun.
Miklar breytingar hafa orðið í starfsumhverfi síðustu 3 ár og er sveigjanleiki einn þeirra breytinga, margt fólk vinnur í sífeldu meira mæli heiman frá sér og hefur ekki eins sterk félagsleg tengsl við vinnustaðinn og áður. Það veldur því að oft er erfiðara fyrir stjórnendur að greina m.a. kulnun og veikindi starfsmanna. Aðrar breytingar eru einnig miklar í tæknimálum og umhverfismálum sem oft krefst mikillar uppstokkunar á vinnustöðum. Breytingar geta reynst mörgum erfiðar og því mikilvægt að vel sé að málum staðið.
Markþjálfun er eitt þeirra verkfæra sem hefur verið að ryðja sér til rúms í íslensku atvinnulífi, og einstaklega hentug í því óvissu og breytingaferli sem heimsbyggðin gengur nú í gegnum. Fjölmörg fyrirtæki hafa náð mælanlegum árangri með að nýta sér markþjálfun. Erlendis hafa vinnustaðir verið að nota aðferðarfræði markþjálfunar með miklum og góðum árangri til fjölda ára og eru leiðtogar og stjórnendur margir hverjir sammála um það að nýta sér markþjálfun er lykill að árangri, auknum hagnaði og hefur jákvæð áhrif á fyrirtækjamenningu.
Markþjálfun er ekki lögverndað starfsheiti hér á landi en ICF, International Coaching Federation, sem eru stærstu óháðu fagsamtök markþjálfunar í heimi er með þrjú vottunarstig, ACC, PCC og MCC og starfa fjöldi markþjálfa hér á landi undir þeirra siðareglum og hæfnisþáttum. Markþjálfar eru í stöðugri endurmenntun til að viðhalda færni sinni, þekkingu og breytingu í starfsumhverfi. En sífellt fleiri notast við fjarfundarbúnað í sínu starfi.
Markþjálfun er árangursmiðuð og kerfisbundin aðferð sem leitast við að fá einstaklinginn til að ná settu marki. Finna og eða auka styrkleika sína og persónulegan vöxt, sjá nýjar lausnir og viðhalda árangri.
Bjóðum starfsfólki reglulega markþjálfun og tækifæri til að þróast og læra. Nýtum okkur markþjálfun í stjórnunarstöðum og hugum þannig að velferð og árangri.
Commentaires